Privacy policy
Afhendingartími
Pantanir eru afgreiddar á virkum dögum og sendar með Dropp. Afhendingartími er yfirleitt 1–2 virkir dagar frá staðfestingu pöntunar. Vinsamlegast athugið að tafir geta orðið yfir helgar og á almennum frídögum.
Verð og sendingarkostnaður
Öll verð í vefverslun Amora eru með 24% virðisaukaskatti inniföldum. Sendingarkostnaður leggst við áður en greiðsla fer fram.
Skil og skipti
Viðskiptavinur hefur 14 daga frá móttöku vöru til að skila henni og fá endurgreiðslu. Varan þarf að vera ónotuð, í upprunalegu ástandi og í upprunalegum umbúðum. Til þess að réttur til endurgreiðslu sé fyrir hendi þarf kvittun eða pöntunarnúmer að fylgja með.
Eftir að 14 dagar eru liðnir frá móttöku er ekki lengur hægt að fá endurgreiðslu, en viðskiptavinur hefur allt að 30 daga til að óska eftir skiptum í aðra vöru, að uppfylltum skilyrðum um ástand og umbúðir.
Viðskiptavinur ber allan kostnað sem tengist sendingum, bæði við skil og skipti. Þetta á við um sendingu vöru til baka og sendingu á nýrri vöru, ef um skipti er að ræða.
Athugið:
– Ef vara er keypt á afslætti er ekki hægt að fá endurgreiðslu. Þá er einungis hægt að skipta yfir í aðra stærð, ef við á og vara er til á lager.
– Allar skilavörur verða að fylgja kvittun eða pöntunarnúmeri.
Leiðbeiningar um skil og skipti
Skil og skipti fara fram í gegnum Dropp. Þar skal velja Amora sem vefverslun, skrá pöntunarupplýsingar og tilgreina hvort óskað er eftir að skila eða skipta vöru.
Þegar skráningu hjá Dropp er lokið, þarf að senda tölvupóst á amora@amora.is, með pöntunarnúmeri og upplýsingum um hvort um sé að ræða skil eða skipti. Ef óskað er eftir skiptum í aðra vöru, skal tilgreina hvaða vöru á að fá í staðinn, svo hún geti verið tekin frá.
Viðskiptavinaupplýsingar og persónuupplýsingar
Við pöntun þarf kaupandi að gefa upp upplýsingar eins og nafn, netfang og heimilisfang. Með því að leggja inn pöntun samþykkir kaupandi að þessar upplýsingar fari í gagnagrunn Amora.
Amora tryggir að allar slíkar upplýsingar séu meðhöndlaðar sem trúnaðarupplýsingar og verða aldrei, undir neinum kringumstæðum, afhentar þriðja aðila nema lagaskylda krefjist þess.
Öryggisskilmálar
Seljandi tryggir kaupanda fulla trúnað varðandi allar persónuupplýsingar sem veittar eru í tengslum við viðskiptin. Engar slíkar upplýsingar verða afhentar eða seldar til þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.